Hlekkir 

» Volkswagen
» Audi
» Seat
» Lamborghini
» Bentley
» Bugatti

    Stærsti bílaframleiðandi í Evrópu


    Volkswagen samstæðan er stærsti bílaframleiðandi í Evrópu og ennfremur einn stærsti bílaframleiðandi heims. VW framleiðir að meðaltali meira en fimm milljónir bíla á hverju ári, sem er um 12% af heildarframleiðslu bíla í heiminum. 

    Innan VW samstæðunnar eru tvær aðskildar merkjasamstæður, þ.e. Audi og Volkswagen. Markmið samstæðunnar er að bjóða upp á glæsilega, örugga og umhverfisvæna bíla í fjölmörgum stærðarflokkum. Innan Audi samstæðunnar eru vörumerkin Audi, Seat og Lamborghini. Innan Volkswagen samstæðunnar eru vörumerkin Volkswagen, Skoda, Bentley og Bugatti. Hvert vörumerki hefur sitt einkenni og býr yfir fullu sjálfræði úti á markaðinum.

    Bifreiðar VW samstæðunnar eru framleiddar í 45 verksmiðjum í 11 Evrópulöndum og 7 löndum Ameríku, Asíu og Afríku. Yfir 336.000 starfsmenn VW samstæðunnar framleiða 21.500 bíla hvern vinnudag árið um kring út um allan heim.  Bifreiðar VW samstæðunnar eru seldar í yfir 150 löndum út um allan heim.