Sígilt útlit, nýjasta tækni, ákjósanlegt rými fyrir farþega og farangur, aksturseiginleikar í sérflokki og síðast en ekki síst mikið verðmæti gegn vægu gjaldi. Þessa kosti hafa meira en tvær milljónir manna um allan heim nýtt sér, en það staðfestir að Octavia er ein vinsælasta gerðin í Škoda fjölskyldunni.
Hið nýja útlit með sígildum glæsileika ber öll merki þess sem einkennt hefur Škoda Octavia gerðirnar fram til þessa, en er nú í alla staði öflugri og ber með sér aukinn þokka. Yfirbragð bílsins er nú enn fágaðra, útlínur glæsilegri og fram- og afturendi hafa verið endurhannaðir.