Reinhard Jung (*1951),
    stjórnarformaður Skoda Auto

    Reinhard Jung gekk til liðs við samstæðuna árið 1974. Hann hefur háskólagráðu í vélaverkfræði. Hann starfaði sem verkfræðingur við margvísleg verkefni áður en hann varð yfirmaður erlendrar framleiðslu. Jung starfaði við áætlanagerð í verksmiðjunum í Wolfsburg og Salzgitter og í framhaldinu var hann gerður ábyrgur fyrir framleiðslu og stýringu á aðdráttum hjá Volkswagen. Hann var yfirmaður verksmiðjunnar í Brunswick frá 1996 til 2001. Jung var forstjóri VW de México og var kjörinn stjórnarmaður í Volkswagen árið 2004, ábyrgur fyrir framleiðslu og stýringu á aðdráttum.

     

     

    Aðrir stjórnarmenn Skoda Auto (i stafrófsröð):

    Jahn Martin (*1970),
    stjórnarmaður, ábyrgur fyrir stefnu í starfsmannamálum

    Martin Jahn lauk námi frá Hagfræðiháskólanum í Prag og fór til framhaldsnáms í DePaul háskólanum í Chicago. 1999 var hann skipaður yfirmaður ríkisstofnunarinnar Czech Invest. Árið 2004 féllst hann á að taka að sér embætti aðstoðarforsætisráðherra efnahagsmála. Í embættinu lagði hann mesta áherslu á að koma á umbótum í viðskiptaumhverfinu í Tékklandi og að skipulagningu og þróun mannauðsmála. Martin er núna stjórnarmaður í Skoda Auto og er ábyrgur fyrir stefnu í starfsmannamálum.
    Kappler Fred (*1958),
    stjórnarmaður, ábyrgur fyrir sölu- og markaðsmálum

    Að loknu námi í hagfræði við Tækniháskólann í Braunschweig og Háskólann í Hannover réðst Fred Kappler til starfa hjá Volkswagen AG. Þar gegndi hann framkvæmdastjórastöðu á sviði erlendrar sölu og markaðssetningu á varahlutum og aukahlutum. Um síðustu aldamót var hann ráðinn aðstoðarforstjóri og annar æðsti maður á fjármálasviði FAW-VW í Kína. Árið 2004 réðst hann til Skoda Auto þar sem hann var gerður að stjórnarmanni með ábyrgð á sölu- og markaðsmálum. Hann er kvæntur og á fjögur börn.
    Kintscher Holger (*1960),
    stjórnarmaður, ábyrgur fyrir fjármálum

    Holger Kintscher nam framleiðslutækni við Tækniháskólann í Lippe. Að loknu námi hóf hann strax störf hjá Volkswagen AG, fyrst á sviði menntamála, stjórnunar og síðan á fjárhagssviði. Hann hefur verið í stjórn Skoda Auto frá 2005 og er ábyrgur fyrir fjármálum. 
    Mühl Horst (*1947),
    stjórnarmaður, ábyrgur fyrir framleiðslu og aðdráttum

    Horst Mühl lauk námi sem verkfærasmiður en að loknu námi í kvöldskóla hóf hann starfsferil sinn hjá Volkswagen í Wolfsburg í framleiðsluáætlunardeild. Í framhaldi af því starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá TAS í Sarajevo, í aðdráttum hjá Volkswagen í Wolfsburg og frá 1992 til 1996 hjá Skoda í Mladá Boleslav. Níu árum síðar sneri hann aftur til borgarinnar, þá sem stjórnarmaður í Skoda Auto, ábyrgur fyrir framleiðslu og aðdráttum. Hann er kvæntur og á tvö börn. 

    Scholz Eckhard (*1963),
    stjórnarmaður, ábyrgur fyrir tækniþróun 

    Dr. Eckhard Scholz útskrifaðist frá Tækniháskólanum í Braunschweig með gráðu í vélaverkfræði, orkufræði og ferlafræði, (1985 – 1990). Hann varði doktorsritgerð sína við Háskóla Martin Luther í Halle árið 2005. Hann hefur starfað hjá Volkswagen AG í Wolfsburg síðan 1991 (við tækniþróunardeild síðan 1996). Dr. Eckhard Scholz varð stjórnarmaður Skoda Auto 1. apríl 2007, ábyrgur fyrir tækniþróun.