ÖRYGGI FYRIR ÞIG
OG ÞÍNA NÁNUST

Það breytir ekki öllu hvort hvort bíllinn þinn er uppspretta ánægju og þæginda eða hvort hann er einungis ætlaður til að flytja þig á milli áfangastaða. Öryggisbúnaður Fabia er nefnilega á háu stigi fyrir alla farþega og er ennfremur hannaður með tilliti til öryggis til gangandi farþega.

    Frábærir aksturseiginleikar Fabia og snör viðbrögð við ákvörðunum ökumanns eru grundvallaratriði hvað viðvíkur öryggi í akstri. Fabia hjálpar ökumanni að forðast varasamar aðstæður og leysir úr þeim með öryggi að leiðarljósi.

    Margreyndur undivagn Fabia með skilvirku fjöðrunarkerfi og rafeindastýrðu vökvastýri stuðlar að þægilegum akstri við allar aðstæður. Allar gerðir Fabia eru með ABS-hemlalæsivörn og Dual-Rate aflhemlum ásamt MSR mótorbremsu sem tryggir örugga hemlunarhæfni og góð akstursskilyrði. Í Fabia er einnig fáanleg ASR spólvörn og ESP stöðugleikastýring. TPM-kerfi gerir þér strax aðvart ef loftþrýstingur fellur í hjólbörðum.

    Skilvirk hönnun er á aflögunarsvæðum á undirvagninum og þau eru efld með sterkbyggðum hliðarstyrkingum. Öryggispúðar fyrir ökumann og farþega í framsæti er staðalbúnaður eins og hliðaröryggispúðar ásamt ISOFIX-festingum fyrir barnabílstóla í aftursætum.

     

    Öryggisgardínur

    Öryggisgardínur eru nýjung í búnaði fyrir Fabia. Við árekstur mynda þær “vegg” eftir endilangri hliðinni í innanrýminu og koma í veg fyrir alvarleg meiðsli á farþegum í framsætum og aftursætum. 

    Beygjuljós

    Í stað endurspeglunarflatar nýta framljósin sér linsur til að dreifa birtumagninu, svipað og í xenon-ljósum. Ljósgeislinn færist til hliðar í samræmi við snúning á stýrinu. Framljós í innanverðri beygju getur snúist allt að 15° í sömu átt og beygt er og ytra ljósin allt að 7,5°. 

    Ef óhapp hendir

    Aðvörunarljós og inniljós kvikna sjálfkrafa ef kemur til óhapps. Sömuleiðis aflæsast hurðir, eldsneytisdælan slekkur á sér og það lokast fyrir eldsneytisstreymi frá tanki svo líkurnar minnki á því að eldur kvikni.

    Vörn fyrir gangandi vegfarendur

    Fabia uppfyllir nýja tilskipun Evrópusambandsins um varnir fyrir gangandi vegfarendur (Þrep 1). Mun minni líkur eru á meiðslum gangandi vegfaranda sem lendir fyrir Fabia vegna hönnunar á vélarrými. Fastir vélarhlutar eru nú í nægilegri fjarlægð frá vélarhlífinni auk þess sem ný hönnun á framstuðara og nýir hlutir í hönnun bílsins draga úr höggkraftinum við óhapp.