Octavia fær nýtt yfirbragð


Margvíslegar breytingar hafa verið gerðar á Octavia, sem eiga eftir að gera vinsælasta bílinn frá Škoda ennþá eftirsóknarverðari. Ýmsir þættir varðandi útlit og innréttingu stuðla að auknu öryggi og betri aksturseiginleikum.

Ný gerð aðaljóskera, stærri útispeglar og endurbættir hindrunarvarar auðvelda ökumanni verulega stjórnun bílsins. Þegar komið er inn í bílinn blasir við ný gerð mælaborðs með hvítum skýrum kvörðum á öllum mælum ásamt rafrænum rofum fyrir miðstöð, loftfrískunarkerfi og hitunarbúnað í framsætum.

Hægt er að fá hitunarbúnað í aftursætin og eru þá stjórnrofarnir í aftanverðum miðstokki til hægðarauka fyrir þá sem sitja afturí.



 

Farþegarnir, bæði í fram- og aftursætum, munu nú njóta verunnar í Octavia enn betur vegna þess hve rúmgóður bíllinn er. 

Við hljóðflutningskerfi bílsins má svo tengja búnað eins og iPod og hljómdiska, sem hægt er að stjórna ýmist með rofum á útvarpstækinu eða í stýrishjólinu. Til þæginda á ferðalögum má einnig telja nýja bólstrun og klæðningu á sætum og annarri innréttingu, sem fær svo áherslu með fallegum leggingum til skreytingar.

Stór miðstokkur

Á milli framsætanna er stór stokkur með stillanlegri armhvílu og hólfi með kælibúnaði (bílar með loftkælikerfi). Að framanverðu er tengi fyrir hljómflutningsbúnað og að aftanverðu eru rofar fyrir rafhitun í aftursætum (aukabúnaður).

Amundsen fjölmiðlunarkerfi

Um er að ræða 5" snertiskjá í lit, tengdan AM/FM útvarpstæki, búnað fyrir RDS og TP kerfi, ásamt spilara fyrir ýmsar gerðir hljómdiska (ekki í boði á Íslandi eins og er).

Ný gerð aðalljóskera

Nýju ljóskerin eru töluvert stærri en áður og setja sterkari svip á bílinn. Þau ná nú lengra út á hliðar frambrettanna og eru áberandi hluti af hinni glæsilegu ásýnd framendans á Octavia. Hægt er að fá ljóskerin af Xenon gerð með beygjubúnaði gegn viðbótargjaldi.

Álfelgur

Frísklegt og aðlaðandi útlit yfirbyggingarinnar fær aukið vægi með stílfögrum 15" álfelgum. Einnig eru fáanlegar sem aukahlutir ýmsar felgur úr sama efni af stærðununum 15", 16" og 17".