Superb er hlaðinn þægindabúnaði og hlutum til nytja og þæginda, bæði fyrir ökumann og farþega. Þægindi í Superb tekur ekki aðeins til ríkulegs innra rýmis. Í Superb er leitast við að hvert einasta smáatriði sé svar við kröfum þínum um þægindi.
Škoda Superb er fáanlegur í tveimur útfærslum. Ambition útgáfan býður upp á 3ja pílára stýrishjól úr leðri. Gírstangarhnúður og handbremsuhemill eru einnig úr leðri. Í Elegance útgáfunni er í boði viðarklæðning og 4ra pílára, leðurklætt stýrishjól, gírstangarhnúður og handbremsuhemill. Climatronic miðstöðvarkerfið er alsjálfvirkur búnaður sem heldur fyrirframákveðnu hitastigi stöðugu í farþegarýminu og þá skiptir engu hvort úti er hörku frost eða hitabylgja. Þótt loftblásarinn sé öflugur myndast ekki dragsúgur þegar loftið dreifist um farþegarýmið. Hinn rafræni stjórnbúnaður kerfsins tekur mið af þáttum einsog hitastigi úti og áhrifum frá geislum sólar.
Hver hlutur á sinn stað. Á vinstri afturhurð er geymsluhólf fyrir Superb regnhlífina sem fylgir bílnum. Hólfið er þannig hannað að vatn frá regnhlífinni rennur út úr bílnum.