Rými og krafturRými er einn af ótvíræðum kostum nýju gerðarinnar af Superb. Til marks um það hefur fótarými farþega í aftursætum verið aukið um 19 mm og rými farangursgeymslu í 565 lítra. Sem dæmi um vélar í boði má nefna 4ra strokka 1.8 TSI 118 kW bensínvélina (með DSG gírskiptingu). Hún er með 250 Nm snúningsvægi við 1800 og 4500 sn./mín. Hröðun úr 0 í 100 km/klst er 8.5 sekúndur. Meðal eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri er 7.6 l/100 km. Sjö þrepa DSG sjálfskipting er í boði fyrir þessa vél eingöngu.
Olnbogarými að framan/aftan (mm):
*) Eigin þyngd
Auk 1.9 TDI/77 kW og 2.0 lítra TDI/103 kW dísilvéla með forþjöppu og dæluspíssum er í boði 2.0 lítra, 4ra strokka dísilvél með forþjöppu og samrásarinnsprautun sem afkastar 125 kW.
Beinskipti gírkassinn er með 6 gíra og nákvæma, létta skiptingu og afar hagstæð hlutföll á milli hraðastiga. 1.9 TDI/77 kW vélin er með 5 þrepa gírskiptingu.
Í boði er bæði 6 og 7 gíra DSG sjálfskipting, 6 gíra fyrir 2ja lítra dísilvélina og 3.6 lítra V6/191 kW bensínvélina. Nýja 7 gíra DSG gírskiptingin er valkvæð og er einungis í boði fyrir 1.8 TSI/118 kW bensínvélina.