Vernd og öryggi farþega ásamt meðvitaðri ábyrgð gagnvart öðrum vegfarendum er ein af höfuðskyldum við hönnun bifreiðar. Það var haft að markmiði við framleiðslu Škoda Superb að hann kæmist í hæsta flokk í krefjandi öryggisprófum og það tókst. Superb hlaut fimm stjörnur, eða hæstu mögulegu einkunn fyrir öryggi í nýlegum Euro-NCAP öryggisprófunum.
Loftpúðar eru órjúfanlegur þáttur í öryggisbúnaði bíla. Í Škoda Superb eru níu öryggisloftpúðar. Í bílnum eru höfuðpúðar, púðar fyrir ökumann og farþega í framsæti, hliðar loftpúðar frammí auk loftpúða sem vernda hné ökumanns.Sem tæknilega fyrirbyggjandi öryggisbúnaður eru Bi-Xenon aðalljóskerin afar mikilvæg. Þau eru með innbyggðum beygjubúnaði, tengdum stefnu framhjólanna, og lýsa þannig upp hindrun, sem áður gat leynst í beygju á veginum. Þokulugtirnar að framan eru sömuleiðis áríðandi öryggisbúnaður en þær eru sambyggðar dagljóskerunum í kringlóttum ramma.
Til að minnka hættu á að ekið verði aftan á bílinn, ef nauðhemlað er í þéttri umferð, blikka hemlaljósin sjálfvirkt og hættuljósin kvikna einnig sjálfkrafa eftir að bíllinn hefur stöðvast.
Til að tryggja örugga stjórn bílsins við hættulegar aðstæður er í bílnum ýmis rafstýrður búnaður eins og stöðugleikastýring, hemlalæsivörn, spyrnustjórnun, spólvörn og mismunadrifslæsing. Einnig er hemlakerfið með vökvaknúið hjálparafl. Svokallaður brekkuhemill gerir kleift að aka úr kyrrstöðu í halla án þess að nota stöðuhemilinn. Sjálfvirkt eftirlit með þrýstingi í hjólbörðum veitir ómengaða öryggiskennd við aksturinn.