Utanmál  
Lengd (mm):

4223

Breidd (mm):

1793

Hæð (mm):

1691

Vegfríhæð (mm):

180

Hjólahaf (mm):

2578

Hæð þröskuldar við farangursgeymslu (mm):

712

Sporvídd að framan/aftan (mm):

1541/1537

   
Innanmál  
Olnbogarými að framan/aftan (mm):

1446/1437

Höfuðrými að framan/aftan (mm):

1034/1027

Rými farangursgeymslu lágmark/hámark (l):

405/510*

Rými farangursgeymslu með niðurfelld sæti (l):

1580/1760


*) Eftir stöðu aftursæta.

Vélar
Í boði eru tvær gerðir bensínvéla og þrjár gerðir dísilvéla. Þetta eru allt 4ra strokka línuvélar, þverstæðar frammí með forþjöppu og háþrýstri eldsneytisinnsprautun. Vélarnar uppfylla allar staðalinn EU 5 um skaðleg efni í útblæstri bifreiða og skara fram úr vegna lítillar eldsneytiseyðslu.

4x4
Aldrifsbúnaðurinn í Yeti er byggður á endurbættri tæknilausn þar sem fram- og afturdrif eru sítengd með svokallaðri Haldex kúplingu. Á þennan hátt tekst að tvöfalda grip og spyrnu veghjólanna, en halda þó eldsneytiseyðslu í lágmarki. Afturásinn er nú með breytta fjölliðafjöðrun og aukna sporvídd, sem gerir bílinn stöðugri á ósléttum vegi og auðveldari í stjórnun.

 

Bensínvélar

Algjörlega nýr bensínhreyfill er í boði í allar gerðir Skoda. Hann er 4ra strokka, 1.2 lítra með strokkinnsprautun og afkastar 77 kW. Þessi grunngerð er ætluð fyrir Yeti með eindrif, en einnig er á boðstólum 1.8 lítra TSI bensínvél sem afkastar 118 kW.

Dísilvélar

Önnur nýjung sem birtist í Yeti er 2.0 lítra dísilhreyfill með forþjöppu , samrásarinnsprautun og dæluspíssum. Þessi vél fæst ýmist með 81 kW eða 103 kW. Einnig er í boði 2.0 TDI dísilvél með 125 kW afköstum.

Handskiptur gírkassi

Þessir gírkassar eru með einstaklega lipra og nákvæma skiptingu og fást bæði 6 gíra og 5 gíra en sú gerð fæst þó aðeins í bílum með eindrifi og 2.0 lítra, 81 kW dísilhreyfli.

Sjálfskiptur gírkassi

Í bílum sem eru með eindrif og 2.0 lítra 81 kW bensínvél er boðin nýtækni sjálfskipting með 7 hraðastig, sem ýmist getur verið sjálfvirk eða hálfsjálfvirk.